Verðmat á Kviku hefur verið lækkað nokkuð eftir að afkoman reyndist undir væntingum annan ársfjórðunginn í röð og vegna neikvæðra áhrifa sem hækkun bankaskatts hefur á virði félagsins. Þjónustutekjur hafa dregist talsvert saman og þótt útlánavöxtur hafi verið mikill er nú talið hæpið, að mati hlutabréfagreinanda, að bankinn nái áður settum vaxtarmarkmiðum.