Hjartadeildin hafði nýlega verið gerð upp og var því kjörinn staður til að prófa nýja kerfið sem heitir Qumea. Á deildinni er jafnframt mikið flæði sjúklinga og byltur, þegar sjúklingur dettur, voru frekar algengt vandamál. Gjarnan þurfti að kalla út fólk til að sitja yfir sjúklingum. > Það er þannig á sjúkrahúsum alls staðar í heiminum að byltur eru algengustu atvik sem eiga sér stað á spítalanum. Þetta kerfi hjálpar okkur að fækka byltum, segir Bylgja Kærnested forstöðuhjúkrunarfræðingur. Nýtt byltuvarnarkerfi var tekið í notkun á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut árið 2024 og í kjölfarið hefur byltum fækkað umtalsvert. Landinn fjallaði um málið.Kerfið virkar þannig að skynjari í loftinu nemur hreyfingar sjúklings, eða hreyfingarleysi, og hægt er að stilla hann eftir hverjum og