Skoðað með hraði hvort Landspítali geti komið á læknisþjónustu á Vogi

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, fundaði með stjórnendum SÁÁ í morgun. Nýráðinn framkvæmdastjóri lækninga sagði starfi sínu lausu í gær. Mun færri eru inniliggjandi á sjúkrahúsinu Vogi en vanalega vegna manneklu.Runólfur segir að fundurinn hafi fyrst og fremst snúist um upplýsingamiðlun af hálfu stjórnenda SÁÁ, um umfang verkefna sem heyra undir lækna og fyrirkomulag læknisþjónustunnar til þessa.„Við munum skoða með hraði hvaða möguleika Landspítali hefur til að koma tímabundið í kring læknisþjónustu á Vogi,“ segir hann. Verkefnið sé mjög brýnt.Starfsfólk SÁÁ fundaði svo með framkvæmdastjórn samtakanna vegna stöðunnar.
Skoðað með hraði hvort Landspítali geti komið á læknisþjónustu á Vogi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd