Útlit er fyrir að Barði NK geti farið aftur til veiða fyrir áramót. Unnið hefur verið að viðgerðum á skipinu í Færeyjum síðan eldur kviknaði í vélarrúmi skipsins í júní. Þá var nýbúið að taka vélina upp og var skipið á heimleið frá Færeyjum.Greint var frá því á vef Síldarvinnslunnar í dag að Barði ætti að geta hafið veiðar fyrir lok árs. Miklar skemmdir urðu í vélarrúminu. Öll klæðning og kaplar eyðilögðust og annar búnaður skemmdist. Vonir standa til að viðgerð verði lokið síðari hluta næsta mánaðar og að skipið geti farið í prufusiglingu í fyrri hluta nóvember. Gangi það vel kemur skipið heim fyrir jól.Barði NK að veiðum.Aðsend / Síldarvinnslan