Mikill viðbúnaður lögreglu og sjúkraliðs var við blokk í Engihjalla í Kópavogi um níuleytið í gærkvöld. Myndband sem íbúi birti af vettvangi birtist hér í ritskoðaðri útgáfu. Það sýnir að þrír sjúkrabílar voru á vettvangi og tveir merktir lögreglubílar.