Tveggja ára gamalt mál hefur komist í hámæli í Bandaríkjunum eftir að saksóknarar í New York ákváðu að taka það upp að nýju. Sjö karlkyns nemendur við Cornell-háskóla eru sakaðir um hópnauðgun og lögmaður konunnar segir skólann hafa boðið þeim mildari refsingu gegn ritgerðarskrifum.Konan, sem er kölluð Jane Doe í bandarískum miðlum, kýs að koma ekki fram undir nafni. Fyrr í þessum mánuði höfðaði hún einkamál gegn Cornell, bræðrafélagi í skólanum og sjö þáverandi nemendum og meðlimum í bræðrafélaginu. MILDARI REFSING GEGN RITGERÐARSKRIFUM Frásögn konunnar er mjög óhugnanleg. Án þess að fara út í smáatriði þá segist hún hafa verið drukkin, farið í húsakynni bræðrafélagsins og þar hafi verið þrýst á hana að taka sterk eiturlyf og henni hópnauðgað klukkustundum saman.Hún tilkynnti málið til