„Þetta eru mikil vonbrigði“

„Þetta eru mikil vonbrigði,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, um vaxandi verðbólgu. Hún er 5,9 prósent og hefur ekki verið hærri síðan í ágúst 2024.„Við getum sagt að það góða í þessu er að undirliggjandi verðbólga er ennþá mjög hófleg en við erum að taka töluvert mikinn kúf núna vegna hækkunar á olíuverði.“Daði Már segir að það sé alltaf spurning hvort tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti hefði átt að gilda lengur. Hann segir að þegar sú lækkun var ákveðin hefði verið búist við enn meiri hækkun olíuverðs en raunin varð. „Það verður að taka tillit til þess að til lengri tíma litið skiptir mestu máli að við náum tökum á ríkisfjármálunum og það þarf þá að fjármagna það með einhverjum hætti.“Daði Már á von á því að verðbólga minnki mikið, sérstaklega þe
„Þetta eru mikil vonbrigði“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd