Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir að hafa orðið félaga sínum að bana á heimili hans á Kársnesi í Kópavogi, segist hafa verið að aðstoða hann við að gera upp íbúðina. Hann hafi verið þar á hverjum degi í langan tíma og oft verið með sár á höndum vegna vinnu sinnar sem kokkur. Það skýri blóð úr honum á vettvangi.Þetta kom fram í skýrslutöku yfir Georgios við aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Honum er gefið að sök að hafa orðið félaga sínum að bana á heimili hans á Kársnesi í Kópavogi í 28. nóvember 2025. Hann neitar sök.Maðurinn fannst látinn á heimili sínu í hádeginu 30. nóvember. Upphaflega var talið að hinn látni hefði veitt sér áverkana sjálfur en Georgios var handtekinn nokkrum dögum síðar. Hann sat í gæsluvarðhaldi um tíma, var sleppt en hnepptur aftur í varðhald þega