Verðbólga mældist 5,9 prósent í september og hefur ekki verið meiri í rúm tvö ár. Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir hækkað eldsneytisverð skýra nær alla aukninguna frá ágúst. Hún býst við að verðbólgan haldist yfir fimm prósentum næstu mánuði.