Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir stöðuna innan SÁÁ mikil vonbrigði. Vonir hefðu verið bundnar við að átakasaga innan samtakanna væri að baki. Forstjóri Landspítalans og forstjóri SÁÁ funda um hvort og hvernig Landspítalinn geti stigið inn í deilurnar innan samtakanna sem hafa valdið ólgu í faglegu starfi síðustu vikur.