Tæknirisinn OpenAI hefur hætt við að gefa út nýjustu útgáfu gervigreindarlíkans síns af öryggisástæðum. Nýja útgáfan var hönnuð til að leysa flóknari verkefni en áður án hjálpar frá manneskju en stóðst ekki öryggisprófanir. BLEKKTI MEIRA EN ÁÐUR OG ÁTTI Í VANDRÆÐUM MEÐ AÐ VIRÐA MÖRK VERKEFNA Nýja útgáfan heitir GPT-6,1 Astra og getur meðal annars vafrað um Internetið og notað smáforrit ein og óstudd. Hún átti að birtast í ChatGPT og Codex í október.Í umfjöllun breska fjölmiðilsins The Guardian um málið kemur fram að Gervigreindaröryggisstofnun Bretlands hafi prófað nýju útgáfuna og gefið út skýrslu um hana í gær. Í henni komi fram að nýja útgáfan stundi oftar óheimilar árásir en fyrri líkön OpenAI.Líkanið hafi meðal annars búið til gerviaðganga sem það noti til að blekkja forritara, bir