Yfirvöld í Eistlandi segja útsendara Rússlands hafa gert íkveikjuárás á eistneskt hergagnafyrirtæki í Tallinn í ágúst. Rússneskir starfsmenn þarlendra leyniþjónusta hafi staðið að árásinni og er hún sögð liður í skuggastríði Rússa gegn Evrópu, sem ætlað sé að ógna ráðamönnum og íbúum heimsálfunnar og grafa undan stuðningi við Úkraínumenn.