Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að leikskólinn Sunnuás í Langholtshverfi verði rifinn og að nýtt stærra hús verði byggt á lóðinni. Leikskólinn verður eftir breytingu tíu deilda í stað níu. Leikskólahúsið hefur staðið autt í fjögur ár.Starfsemi skólans var um tíma í gamla Morgunblaðshúsinu í Kringlunni en hefur verið í bráðabirgðahúsnæði á lóðinni síðustu þrjú ár.Tvær athugasemdir bárust um breytingu á deiliskipulagi skólans. Þær sneru meðal annars að aðkomu að leikskólanum og fjölda bílastæða. Bráðabirgðahúsnæði leikskólans er sagt hafa valdið umferðaröngþveiti í kringum leikskólann og gagnrýnt að bílum væri lagt í göturými og jafnvel inni á lóðum nágranna skólans.Í svari skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar eru deiliskipulagsbreytingarnar sagðar gerðar til þess að get