Einn látinn eftir árás á skóla í Slóvakíu

Ein kona er látin eftir árás nemanda í skóla í norðvesturhluta Slóvakíu. Önnur kona og barn eru særð eftir árásina, að því er AFP-fréttaveitan hefur eftir bráðaliðum á vettvangi. Konan sem lést var 61 árs.Konan sem særðist er 44 ára og með stungusár í brjóstholi. Hún var flutt á sjúkrahús ásamt barninu eftir árásina.Fjölmiðlar í Slóvakíu segja báðar konur hafa verið kennara við skólann en barnið hafi verið nemandi.Árásarmaðurinn var nemandi á unglingsaldri.Lögregla segir rannsókn á málinu hafna og að hún hafi náð stjórn á vettvangi. Forsætisráðherra landsins, Robert Fico, vottaði fjölskyldu hinnar látnu samúð og sagðist fylgjast áhyggjufullur með framvindu mála.„Ég er persónulega mjög dapur yfir þessari árás.“Peter Pelligrini, forseti landsins, sagði þetta enn eitt málið þar sem nemandi ræ
Einn látinn eftir árás á skóla í Slóvakíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd