„Ég man þetta kvöld, eins og mörg gamlárskvöld á þessum árum, því þá gekk mikið á í miðborginni. Og í minningunni var þetta ekkert merkilegt atvik,“segir Jón Pétursson fyrrverandi lögreglumaður en hann var fyrstur á vettvang þegar Hafmeyja Nínu Sæmundsson var sprengd á nýársnótt 1960.Jón rifjar upp í þættinum Hver sprengdi Hafmeyjuna?, hvernig þeir félagarnir fóru á Willy´s jeppa á vettvang glæpsins, gengu út á ísinn í niðamyrkri og fundu þar höggmyndina í brotum.Fjallað er um lögreglurannsókn glæpsins í þriðja þætti af Hver sprengdi Hafmeyjuna?Hafmeyjan eftir Nínu Sæmundsson er eina listaverkið sem hefur verið sprengt í loft upp á Íslandi. Listfræðingur segir ofbeldið í verknaðinum aldrei hafa verið gert upp. Í hlaðvarpsseríunni Hver sprengdi Hafmeyjuna á Rás1 er kafað í málið.Rannsóknin