Tónlistarmaðurinn og rapparinn Aron Can fagnaði stórtónleikum um helgina með stjörnum prýddu eftirpartýi á Reykjavik Edition-hótelinu. Meðal gesta voru Helga Þóra Bjarnadóttir, fyrirsæta, Patrekur Jaime, raunveruleikastjarna, Gummi Emil, einkaþjálfari, Elvar Orri ungstirni og Erna María, flugfreyja og ástin hans Arons.