Einn mesti ævintýramaður Breta á síðustu öld finnst hvergi. Fjölskylda hans og aðdáendur segja í viðtölum við breska fjölmiðla að þau hafi hvorki náð að hitta Sir Ranulph Fiennes né tala við hann síðustu mánuði. Það sé eins og hann hafi horfið af yfirborði jarðar.Svo virðist sem deilur innan fjölskyldunnar hafi orðið til þess að eiginkona Fiennes, Louise Millington-Cotes, haldi fjölskyldu og vinum frá landkönnuðinum síðustu mánuði. Fiennes greindi frá því fyrir rúmlega tveimur árum að hann væri með parkinsons.Fiennes er ef til vill frægasti ævintýramaður Bretlands síðustu áratugina. Hann varð fyrsti maðurinn til að ganga bæði á Norðurpólinn og Suðurpólinn. Heimsmetabók Guinness lýsti honum á sínum tíma sem merkasta núlifandi landkönnuði veraldar. 65 ára varð Fiennes elsti Bretinn til að ga