Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis leiði af sér að frumvarp um bókun 35 verði samþykkt á Alþingi og innleitt með réttum hætti í íslensk lög. Gunnar Þór telur því að óþarft að deilan bókun 35 fari fyrir EFTA-dómstólinn þar sem Hæstiréttur Íslands sé búinn að lýsa því að innleiða þurfi bókun 35 betur í íslensk lög. Í bókun 35 felst sú meginregla að reglur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) hafi forgang á íslensk lög á Íslandi nema að Alþingi hafi ákveðið sérstaklega undanþágur í einstaka tilfellum.Orðrétt segir Gunnar Þór um þetta: „Ég sé nú ekki í sjálfu sér hvað yrði unnið með því [að EFTA-dómstóllinn taki málið fyrir]. Hæstiréttur er búinn að kveða úr um það að bókunin sé ekk