Hvasst og blautt

Veðrið gerir lítið til að gleðja landsmenn í dag og á morgun. Stinningskaldi og allhvass vindur verða víða um land. Sunnlendingar og fólk á suðvesturhorninu fá vænustu gusurnar og mesta vindinn.Í fyrramálið er útlit fyrir storm syðst á landinu áður en rofar til um skeið.Gengur í austan- og suðaustan 10-18 metra á sekúndu og fer að rigna, hvassast syðst, en norðaustan 8-15 norðvestanlands. Talsverð eða mikil úrkoma um tíma sunnan- og suðvestantil í dag. Snýst í suðaustan 8-15 og dregur úr vætu í kvöld, en fer að rigna aftur í nótt.Austlæg átt, 10-18 metrar á sekúndu og víða rigning framan af morgundegi, 20-23 metrar á sekúndu um tíma syðst í fyrramálið, en hægari og rofar víða til seinnipartinn. Hvessir aftur og rignir annað kvöld. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Hvasst og blautt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd