Vænta formlegs svars frá Bandaríkjastjórn í dag

Utanríkisráðherra Íran, Abbas Araghchi (t.v.) á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.EPA / SARAH YENESELUtanríkisráðherra Íran, Abbas Araghchi, segir að stjórnvöld í Íran búist við formlegu svari frá Bandaríkjastjórn í dag varðandi opnun Hormússunds. Íranskur ríkisfjölmiðill greindi frá þessu í gærkvöld.Araghchi segir að milligöngumenn frá Katar hafi lagt fram hugmyndir og þeir ætluðu að ræða þær við Bandaríkjamenn aftur.Að því loknu verði lokasvar Bandaríkjanna kynnt stjórnvöldum Írans. Æðsti sendiherra Írans er staddur í New York á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hann vonast til þess að svar berist frá Bandaríkjamönnum í dag.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur áður hafnað tillögu Íranaum opnun Hormússunds, en ekki formlega.
Vænta formlegs svars frá Bandaríkjastjórn í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd