Stjórnvöld í Litáen hafa sett rússnesku milljarðamæringana og ólígarkana Alisher Usmanov og Mikhail Friedman á lista yfir óæskilega einstaklinga, persona non grata – lista stjórnvalda í Litáen. Ólígarkarnir fá ekki að koma til Litáen í fimm ár. Bannið verður síðan endurmetið að þeim tíma liðnum og gæti verið framlengt.Litáíska ríkisútvarpið greinir frá.Kęstutis Budrys utanríkisráðherra og Martynas Katelynas innanríkisráðherra tóku þessa ákvörðun eftir að Usmanov og Fridman voru teknir af svörtum lista Evrópusambandsins vegna efnahagsþvingana í garð Rússa 22. september.Nokkur Evrópulönd fóru fram á að þeir yrðu teknir af listanum, Lettar beittu neitunarvaldi en drógu það síðan til baka og að endingu samþykktu öll ESB-löndin að þeir yrðu fjarlægðir af listanum.Stjórnvöld í Eistlandi og Lettl