Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur undirritað forsetatilskipun um fjölgun í hernum um 15.500 hermenn. Þetta er í fjórða sinn sem fjölgað er í rússneska hernum á þessu ári.Samanlögð fjölgun hermanna í rússneska hernum á þessu ári er 47.860 þúsund hermenn. Heimilaður fjöldi hermanna í rússneska hernum verður 2.441.630, en þar af eru 1.550.000 virkir hermenn.Ekki hefur verið gefin upp ástæða fyrir þessari aukningu í þetta sinn en mikið mannfall hefur verið í röðum bæði Rússa og Úkraínumanna að undanförnu.Hægt hefur á framgangi Rússa á vígvellinum en vegna aukinnar notkunar dróna í hernaði er orðið nær ómögulegt að vera með mikla flutninga stórra herdeilda.Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu sagði í færslu á X í gær að yfir 8.000 hermenn frá Norður-Kóreu væru í Rússlandi og undirbúningur vær