Að minnsta kosti 81 er látinn eftir úrhellisrigningar og flóð í ríkinu Uttar Pradesh á norður Indlandi undanfarna daga samkvæmt hamfarastofnun ríkisstjórnarinnar. Yfir 2.200 hús eyðilögðust, yfir 150 skepnur drápust vegna rigninganna og yfir áttatíu hektarar af ræktunarsvæði urðu fyrir skemmdum.Ríkið er fjölmennasta ríki Indlands með yfir 240 milljónir íbúa. Monsúnregntímabilið er frá júní og fram í september og á þessum árstíma er oft mikil úrkoma og þrumuveður í ríkinu. Öll héruðin 75 nema eitt í Uttar Pradesh skráðu mikla umframúrkomu á sunnudaginn.Veðurstofa Indlands hefur á undanförnum árum varað við aukinni öfgum í veðri, líkt og þrumuveðri og eldingum, sem sérfræðingar rekja til hækkandi hitastigs og breytinga á veðurfari.Annars staðar í landinu eru það þó miklir þurrkar sem hrjá íb