Bandarískt fyrirtæki byggir stálverksmiðju í Iowa

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær áætlanir um byggingu stálverksmiðju í Iowa. Bandaríkjaforseti segir að þetta verði stærsta stálverksmiðja Bandaríkjanna nokkurn tímann.Fyrirtækið Mesabi Metallics reisir verksmiðjuna og er framkvæmdin metin á 15 milljarða dollara. Málmgrýti verður unnið úr nýrri námu fyrirtækisins í Minnesota sem er fyrsta slíka náman í Bandaríkjunum í fimmtíu ár.Þingkosningar verða í nóvember og Iowa er mikilvægt fylki fyrir Repúblikana. Vonir eru bundnar við að þessi tilkynning um stálverksmiðjuna sendi jákvæð skilaboð til kjósenda Repúblikana í ljósi vaxandi reiði kjósenda vegna hækkandi framfærslukostnaðar og stríðsins við Íran.
Bandarískt fyrirtæki byggir stálverksmiðju í Iowa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd