Brúin yfir Hoffellsá.RÚV / Brynja Dögg FriðriksdóttirHoffellsárbrú í Hornafirði verður lokuð frá klukkan 7:00 þriðjudaginn 29. september til klukkan 16:00 fimmtudaginn 1. október vegna viðhaldsaðgerða á brúnni sem er einbreið.Hoffellsárbrú verður lokuð allri umferð meðan á framkvæmdum stendur og því verður ekki hægt að aka Hornafjarðarveg nr. 987 þessa daga, segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.Vegfarendur eru því beðnir að aka um nýja hringveginn um Hornafjörð, en engin gjaldtaka verður á Hringvegi 1 um Hornafjörð á meðan Hoffellsbrú er lokuð.Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og virða merkingar á vinnusvæðinu.