Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er nýkomin heim af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hún flutti ræðu sem vakti talsverða athygli á heimsvísu. Hún var gestur í Silfri kvöldsins.Þorgerður segir að sér hafi fundist tími til vera kominn til þess að tala skýrar og af meiri ákveðni um ástand alþjóðakerfisins. Í ræðu sinni beindi hún spjótum sínum sérstaklega að Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.„Það er búið að skrifa undir friðarplan, Sameinuðu þjóðirnar eru búnar að samþykkja ákveðna áætlun en samt er það þannig að það er verið að drepa börn og verið er að koma í veg fyrir að mannúðaraðstoð komi inn á svæðið.“Þorgerður Katrín Gunnardóttir segir það hörmung og hugleysi að þjóðarleiðtogar stórra þjóða geti ekki tekið sig saman og komist að friðarsamningum. Þor