Í mars 2023 fengu 378 einstaklingar aðstoð en í júlí á þessu ári voru þeir 70 talsins.Árangurinn má rekja til aukinnar samvinnu milli velferðarsviðsins og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, Vinnumálastofnunar og fleiri stofnana.Hilma H. Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni-og ráðgjafateymis á velferðarsviði Reykjanesbæjar, var gestur Síðdegisútvarpsins á rás tvö. HVETJA FÓLK TIL AÐ KOMAST AFTUR ÚT Í SAMFÉLAGIÐ Hilma segir samvinnu stofnana hafa skilað þeim árangri að þeim sem þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins hafi fækkað um 80%.Hún segir það geta verið erfitt fyrir fólk sem hefur verið lengi í vanvirkni að koma sér aftur í virkni.„Þannig þetta hefur svolítið verið það að hvetja fólk til þess að fara af stað, þá kemur oft eitthvað annað sem leiðir