Reykjavíkurborg hefur sagt upp fjölda leigusamninga við fólk í skapandi störfum vegna eldvarna. Leigjendum þykja fyrirheit um hverfi lista og frumkvöðla í Gufunesi hafa farið fyrir lítið. Halldór H. Jónsson arkitekt teiknaði Gufunesveg 40, eitt hús Áburðarverksmiðjunnar. Það má muna fífil sinn fegurri. Þar inni er að finna hornstein að verksmiðjunni sem lagður var 1954.„Gufunesið og þessar byggingar, sem hér eru, eru náttúrulega bara rosalega stór hluti af okkar menningarsögu og iðnaðarsögu því að hér hófst stóriðja á Íslandi,“ segir Birta Fróðadóttir arkitekt. Hún vinnur þarna ásamt fleiri arkitektum meðal annars að rannsóknarverkefnum sem þurfa hrátt og stórt rými sem erfitt er að finna og dýrt að leigja. Þau eru með sal til þess sem líka hefur verið notaður undir fjölda sýninga.Í Lestin