Ísland sífellt háværara í gagnrýni á Ísrael

Síðasta eina og hálfa árið hefur Ísland skipað sér í röð Evrópuríkja sem hafa verið fremst í flokki í gagnrýni á Ísrael, bæði vegna Gaza og landtökubyggða á Vesturbakkanum.Frá í maí í fyrra hefur Ísland undirritað fjölda sameiginlegra yfirlýsinga sem ætlað er að setja þrýsting á Ísraela. Nokkur ríki skera sig úr í hópi þeirra sem hafa gagnrýnt Ísrael hvað oftast.Auk Íslands eru þetta Írland, Noregur og Spánn. Lúxemborg, Slóvenía og Malta hafa sömuleiðis oft verið í þessum hópi.Ræða utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um helgina, þar sem hún setti ofan í við Benjamin Netanyahu, er í takt við þessa áherslubreytingu íslenskra stjórnvalda.
Ísland sífellt háværara í gagnrýni á Ísrael

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd