Icelandair hættir að fljúga til Halifax í Kanada í október. Þetta staðfestir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair í skriflegu svari til fréttastofu.Hann segir flugfélagið fljúga til Halifax til og með 18. október á þessu ári. Áfangastaðurinn verði ekki hluti af sumaráætlun Icelandair næsta sumar líkt og undanfarin ár.„Við gerum reglulega breytingar á flugáætlun okkar með það að markmiði að svara sem best eftirspurn viðskiptavina okkar,“ segir í svari Boga.Fréttastofu barst ábending um að farþegum hefði borist tilkynning um að flugum þeirra til og frá Halifax næsta sumar hefði verið aflýst án skýringa. Þjónustufulltrúi Icelandair hafi heldur ekki haft skýringar á því hvers vegna flugunum hafi verið aflýst og sagt áfangastaðinn afar vinsælan.