Tveggja ára rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á eldsvoða á Stuðlum, þar sem 17 ára piltur lést, er komin á borð héraðssaksóknara. Tólf eru með réttarstöðu sakbornings í málinu sem snýst um manndráp af gáleysi, þar á með Óskar Jósefsson forstjóri Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna.Kveikt var í dýnu í herbergi á neyðarvistunargangi Stuðla 19. október 2024 með þeim afleiðingum að 17 ára piltur lést og starfsmaður Stuðla slasaðist. VERULEGIR ANNMARKAR Á BRUNAVÖRNUM OG EFTIRLITI Í ítarlegri rannsóknarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem kom út í mars, segir að verulegir annmarkar hafi verið á brunavörnum og að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslát hefðu þær verið í lagi.Þá hafi eftirlitsaðilar ítrekað krafið Ríkiseignir, sem eiga húsnæði Stuðla, um nauðsynlegar úrbætu