Starfsgreinasambandið gerir alvarlegar athugasemdir við hækkanir á álögum stjórnvalda. Í umsögn sambandsins við fjárlagafrumvarp næsta árs kemur fram að það geti ekki stutt frumvarpið óbreytt. „Launafólk hefur lagt sitt af mörkum til stöðugleika með hóflegum langtímakjarasamningum. Forsenda þeirra var að allir tækju þátt í að halda aftur af verðlagi og ná niður verðbólgu og vöxtum. Frumvarpið gengur í þveröfuga átt,“ segir í umsögninni.Það gerir kröfur um að fallið verði frá breytingum sem leiða til minni hækkunar persónuafsláttar, skattleysismarka og skattþrepa og að hækkanir opinberra skatta og gjalda verði færðar að 2,5% hámarkinu. Vilhjálmur Birgisson er formaður Starfsgreinasambandsins.RÚV / Arnór Fannar Rúnarsson