Einum sleppt í gær – tveir af sautján sitja eftir

Lögregla sleppti í gær úr haldi einum mannanna sem hnepptir voru í gæsluvarðhald í síðustu viku vegna rannsóknar á stórfelldu peningaþvætti og fíkniefnamisferli. Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mbl.is greindi fyrst frá.Alls voru sautján handteknir í aðgerðunum á þriðjudag og sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þremur var sleppt í lok síðustu viku en varðhald yfir þremur framlengt. Varðhaldið yfir tveimur þeirra er til næsta föstudags en sá þriðji átti að sleppa í dag. Hann var hins vegar látinn laus að lokinni skýrslutöku í gær, að sögn Elínar Agnesar.Hún segir það alls ekki til marks um að lögreglan hafi farið fram úr sér í aðgerðunum í síðustu viku hversu fáir sitja enn inni af þeim handteknu. Það haf
Einum sleppt í gær – tveir af sautján sitja eftir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd