Harðar loftárásir Rússa á Kyiv í dag

Rússar gerðu umfangsmiklar drónaárásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í dag. Að minnsta kosti einn lét lífið og 21 særðist, þar af þrjú börn. Rússneskur dróni hæfði þorp nærri landamærunum að Póllandi og olli skemmdum á landamærastöð. RÚSSNESK HRYÐJUVERK OG GRIMMDARMENNSKA Drónar hæfðu meðal annars Vísindaakademíu landsins sem er í miðborginni, nærri stjórnarbyggingum, þjóðaróperunni og sendiráði Þýskalands.Í myndskeiði sem deilt var á netinu sést dróni koma á miklum hraða, hafna á húsi Vísindaakademíunnar og springa. Svartur reykur steig upp eftir árásina.Sjónarvottar sáu fólk halla sér út um glugga byggingarinnar meðan eldtungur læstu sig í hluta hennar.Úkraínsk stjórnvöld segja þetta ekki í fyrsta skipti sem Rússar ráðist gegn menningarstofnunum, stjórnarbyggingum og menntastofnunum.Vísi
Harðar loftárásir Rússa á Kyiv í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd