Hjarta- og æðasjúkdómar eru helsta dánarorsök og ástæða örorku í aðildarríkjunum tuttugu og sjö og draga eina komma sjö milljónir til dauða á ári. Aukning hefur orðið í hjartasjúkdómum þrátt fyrir að áhættuþættirnir séu vel þekktir og hægt að bregðast við ef þeir greinast nógu snemma. Þeir eru hár blóðþrýstingur, hátt kólesteról, sykursýki og offita.Framkvæmdastjórnin vill koma á samræmdara eftirliti í aðildarríkjunum og leggur til að allir eldri en 35 ára fari að minnsta kost á fimm ára fresti í skimun fyrir hjartasjúdómum. Þar verði tékkað á öndunarfærum fólks, frjósemi, geðheilsu og fleira. Lagt er til að fólk eldra en 65 ára fari í skoðun á þriggja til fimm ára fresti.Oliver Varhelyi, heilbrigðismálastjóri Evrópusambandsins, segir að aðstoða verði fólk við að tileinka sér heilbrigðan l