Lögregla hefur hætt rannsókn á E. coli-hópsmiti á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í október 2024. Þetta staðfestir Árni Bergur Sigurðsson, settur sviðstjóri ákærusviðs.Hann segir öllum hlutaðeigandi hafa verið tilkynnt um niðurstöðuna. Nú taki við 30 daga kærufrestur, hugnist einhverjum að kæra ákvörðunina til ríkissaksóknara.Spurður um ástæður þess að rannsókn hafi verið hætt segist Árni ekki vilja fara út í einstök atriði en að ekki hafi verið taldar líkur á því að frekari rannsókn myndi leiða til ákæru í málinu.Málið var á ákærusviði í um 8 mánuði eða frá því í janúar á þessu ári. Á tímabili voru fjórir með stöðu sakbornings, þar á meðal matráðurinn og Félagsstofnun stúdenta, sem á og rekur leikskólann. Fyrr í mánuðinum var aðeins einn eftir með stöðu sakbornings en heimildir fréttas