Úkraínskir hermenn hafa rekið Rússa á brott frá meira landsvæði í norðanverðu Dónetsk-héraði, þar sem Úkraínumenn hafa staðið í gagnsókn gegn Rússum um nokkurt skeið. Sókninni er ætlað að gera Rússum erfiðara að leggja undir sig „virkjabeltið“ svokallaða í Dónetsk og þar með restina af Donbas-svæðinu.