Dýrasti múmínbolli í heimi seldur á meira en sex milljónir

Bolli sem sýnir Múmínsnáða kafa innan um skeljar var seldur fyrir rétt rúmlega 46 þúsund evrur í Finnlandi. Upphæðin samsvarar nærri 6,4 milljónum króna. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir múmínbolla.Í frétt finnska ríkisútvarpsins, Yle, segir að sams konar bolli hafi átt fyrra met. Sá var seldur fyrir fimm árum fyrir helming þessarar metupphæðar, eða 23 þúsund evrur.Netverslunin Muumimukit Rahaksi, sem sérhæfir sig í sölu safngripa með Múmínálfunum, stóð fyrir uppboði á bollanum. Það hófst á síðasta ári og endaði ekki fyrr en í apríl.Í fréttatilkynningu verslunarinnar frá í dag segir að mikill áhugi hafi verið á bollanum og að fimm safnarar hafi boðið meira en 40 þúsund evrur í hann. Gripurinn endaði að lokum í höndum safnara sem býr á Norðurlöndunum. HLUTI AF LÍTILLI PRUF
Dýrasti múmínbolli í heimi seldur á meira en sex milljónir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd