Fimm karlmönnum sem voru handteknir í Bretlandi í gær grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk verður sleppt úr haldi gegn tryggingu. Hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar greinir frá þessu.Fyrr í dag var upplýst að mennirnir væru allir breskir ríkisborgarar, karlmenn á aldrinum 20–25 ára og frá Lundúnum. Þeir voru handteknir í gær vegna gruns um undirbúning hryðjuverka og brot á lögum um sprengiefni nærri Fairford-herflugvellinum.Fréttin verður uppfærð.