Maður slasaðist í vinnuslysi við tengivirki í Borgarfirði í dag.Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti manninn til aðhlynningar á Landspítalanum. Ekki fást upplýsingar um líðan hans.Rafmagnslaust hefur verið í Borgarfirði eftir útleiðslu í tengivirki við Vatnshamra fyrr í dag.Rafmagnslaust er í Borgarnesi, Skorradal og allt upp í Húsafell eftir að spennar í tengivirkinu Vatnshömrum leystu út.Tölvu- og símkerfi Heilsugæslunnar í Borgarnesi liggja niðri vegna rafmagnsleysisins.Í tilkynningu frá Landsneti segir að unnið sé að því að koma rafmagni aftur á.Íbúar eru beðnir að fylgjast með tilkynningum á vefsíðu Landsnets.Fréttin verður uppfærð.