Þrjú létust um borð í yfirfullum gúmmíbát á leið frá Frakklandi til Bretlands í dag, tíu ára drengur og tvær konur. Báturinn sökk ekki en talið er að þau hafi troðist undir.Á hverju ári leggur fjöldi flóttafólks leið sína yfir Ermarsundið í von um að fá dvalarleyfi á Bretlandi. Fólk greiðir smyglurum þúsundir dollara fyrir pláss í hættulegum og oft yfirfullum gúmmíbátum.Alls er vitað um 22 dauðsföll á þessu ári. Drengurinn sem lést í dag var á ferð með móður sinni og systkinum. Öll þrjú sem létust eru talin vera frá Erítreu. FÓRU ÚR HÖFN UM MIÐJA NÓTT Báturinn lagði úr höfn í Frakklandi um miðja nótt og þau sem lifðu af fóru frá borði í Calais í Frakklandi um morguninn.Bresk stjórnvöld hafa árum saman leitað leiða til að draga úr þessum ferðum. Það sem af er ári er vitað um 19.135 manns