Hafnarfjarðarbær greiddi frístundastyrk mánaðarlega til foreldra. Sumir foreldrar gátu ekki fullnýtt styrkinn því aðeins var greitt fyrir þá mánuði sem barnið iðkaði frístundina. Frá og með 1. janúar 2026 er allri upphæðinni úthlutað einu sinni á ári. Flestar skráningar í íþróttir eru á haustmánuðum.Þeir sem fengu mánaðarlegar greiðslur frá 1. janúar 2026 fram til haustsins eru, samkvæmt bænum, búnir að nota stóran hluta styrksins árið 2026 og eiga því aðeins brot inni þegar skráning haustsins hefst. Guðni Vilberg Björnsson fer fyrir hópi vonsvikinna foreldra sem vill meina að þetta sé skerðing á styrknum upp á allt að 38.000 krónur á hvert barn.„Þetta var ekkert kynnt. Það kom bara ein klásúla í grein frá bænum að það væri verið að breyta kerfinu og það yrðu kannski bara smá tæknileg vand