Líklegt er að Íslandsbanki hafi að minnsta kosti frestað áformum sínum um fjárfestingar í erlendri fjármálastarfsemi, að mati hlutabréfagreinanda, en mikil endurkaup eigin bréfa og hraður vöxtur erlendra útlána benda til þess að bankinn hafi breytt áherslum við ráðstöfun umframeigin fjár. Þá mun hækkun sérstaks bankaskatts gera Íslandsbanka erfiðara um vik að ná arðsemismarkmiðum sínum til lengri tíma og setur bankann í lakari stöðu að því leyti en helstu keppinauta hans.