Einhver vinsælasti bókaflokkur í sögu Noregs verður að sjónvarpsþáttum á TV2 á næstu árum.Sagan um Ísfólkið kom út í 47 bindum á níunda áratug síðustu aldar og naut feikilegra vinsælda, ekki bara í Noregi heldur líka í öðrum löndum. Hér gaf Prenthúsið bækurnar út og var mál manna að þær seldust í bílförmum, meðal annars í söluturnum landsins þar sem þær stöldruðu ekki lengi við. Þær voru endurútgefnar hér á fyrsta áratug aldarinnar.Börn voru nefnd eftir persónum sagnabálksins og barðist fólk stundum lengi við mannanafnanefnd um að fá ný nöfn viðurkennd.Margit Sandemo, höfundur bókanna, lést fyrir átta árum. Bækur hennar seldust í tugum milljóna eintaka víða um heim en Sagan um ísfólkið var það verka hennar sem naut mestra vinsælda.TV 2 sjónvarpsstöðin ætlar að framleiða þætti sem byggja á