Gerson Rodrigues, markahæsti leikmaður í sögu landsliðs Lúxemborgar, hefur ekki spilað í landsliðstreyjunni síðan í júní á síðasta ári. Hann fékk skilorðsbundinn 18 mánaða fangelsisdóm fyrir líkamsárásir fyrir utan næturklúbb og heimilisofbeldi en hann var dæmdur fyrir að hafa barið þáverandi kærustu sína, Emilie Boland, í nóvember 2022. Boland var valin Ungfrú Lúxemborg 2020.