Landbúnaðarháskólinn á Hólum hefur frá og með þessu hausti verið sameinaður Háskóla Íslands og ákveðin óvissa ríkir um starfsemina á Hólum enda er hluti kennsluhúsnæðis ónothæfur sem stendur vegna myglu.Gunnar Rögnvaldsson, fyrrverandi nemandi og starfsmaður Hólaskóla, segir Hólastað vera einn af merkustu sögu- og menningarstöðum þjóðarinnar og það þurfi að hugsa um hann með þeirri virðingu sem hann á skilið. > Auðvitað finnst okkur; heimamönnum og velunnurum að hið opinbera sem er eigandi Hólajarðarinnar og ber ábyrgð á húsnæðinu, jörðinni sem slíkri og staðarhaldi, hafi bara alls ekki staðið sig nógu vel síðastliðin tuttugu ár. Hólar með sína falllegu staðarmynd sem er á málverkum á næstum því öðru hverju heimili hefur sinn sjarma en það þarf líka að hugsa um þessa staðarmynd, segir Gun