Ríkasta kona Rússlands og árásirnar á fyrirtæki hennar Wildberries

Úkraínuher hefur frá miðjum júlí gert yfir tuttugu árásir á vöruhús og byggingar Wildberries-netverslunarinnar í Rússlandi. Árásirnar hafa markað ákveðin þáttaskil í átökunum milli Rússa og Úkraínumanna og hin sértæka hernaðaraðgerð Rússa, líkt og innrásin kallast í Rússlandi, er allt í einu komin mikið nær hinum almenna borgara í Rússlandi.Rússneska netverslunin Wildberries var líklega fæstum Íslendingum kunn áður en fréttir bárust af árásum Úkraínumanna á netverslunina. Wildberries er gjarnan lýst sem rússneska Amazon, netverslun sem selur ýmsan varning til viðskiptavina sinna í Rússlandi, Armeníu, Belarús, Georgíu, Kasakstan, Kyrgystan, Tajikistan og Úsbekistan.Wildberries er ein vinsælasta verslun Rússlands og um 79 milljónir manna – eða um helmingur íbúa landsins, versla við fyrirtæki
Ríkasta kona Rússlands og árásirnar á fyrirtæki hennar Wildberries

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd