Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian.