Tvær líkamsárásir og tilkynnt um lausa hesta

Lögreglubíll.RÚV / Sölvi AndrasonEinn var handtekinn í Hlíðunum í gær eða nótt vegna líkamsárásar og var maðurinn vistaður í fangageymslu samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Óskað var eftir aðstoð lögreglu í miðborginni vegna annarrar líkamsárásar en árásarmaðurinn flúði af vettvangi áður en lögregla kom á staðinn.Þá barst lögreglunni tilkynning vegna hesta sem voru lausir fyrir utan girðingu í Grafarholti eða Úlfarsárdal, en ekki kemur fram hvort lögregla eða aðrir hafi náð hestunum og komið þeim í girðingu að nýju.
Tvær líkamsárásir og tilkynnt um lausa hesta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd