Stjórnvöld í Íran segja að deilan við Bandaríkin og Ísrael verði aðeins leyst með diplómatískum leiðum. Þetta kom fram í máli Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í gær, degi eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hafi hafnað tillögu Írana um að opna Hormússund og binda enda á átökin.